John 17

1 Þetta hef ég talað til yðar, svo að þér fallið ekki frá. 2Þeir munu gjöra yður samkunduræka. Já, sú stund kemur, að hver sem líflætur yður þykist veita Guði þjónustu. 3Þetta munu þeir gjöra, af því þeir þekkja hvorki föðurinn né mig. 4Þetta hef ég talað til yðar, til þess að þér minnist þess, að ég sagði yður það, þegar stund þeirra kemur. Ég hef ekki sagt yður þetta frá öndverðu, af því ég var með yður. 5En nú fer ég til hans, sem sendi mig, og enginn yðar spyr mig: ,Hvert fer þú?` 6En hryggð hefur fyllt hjarta yðar, af því að ég sagði yður þetta. 7En ég segi yður sannleikann: Það er yður til góðs, að ég fari burt, því ef ég fer ekki, kemur hjálparinn ekki til yðar. En ef ég fer, sendi ég hann til yðar. 8Þegar hann kemur, mun hann sanna heiminum, hvað er synd og réttlæti og dómur, _ 9syndin er, að þeir trúðu ekki á mig, 10réttlætið, að ég fer til föðurins, og þér sjáið mig ekki lengur, 11og dómurinn, að höfðingi þessa heims er dæmdur. 12Enn hef ég margt að segja yður, en þér getið ekki borið það nú. 13En þegar hann kemur, andi sannleikans, mun hann leiða yður í allan sannleikann. Hann mun ekki mæla af sjálfum sér, heldur mun hann tala það, sem hann heyrir, og kunngjöra yður það, sem koma á. 14Hann mun gjöra mig dýrlegan, því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður. 15Allt sem faðirinn á, er mitt. Því sagði ég, að hann tæki af mínu og kunngjörði yður. 16Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur, og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.`` 17Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: ,,Hvað er hann að segja við oss: ,Innan skamms sjáið þér mig ekki, og aftur innan skamms munuð þér sjá mig,` og: ,Ég fer til föðurins`?`` 18Þeir spurðu: ,,Hvað merkir þetta: ,Innan skamms`? Vér vitum ekki, hvað hann er að fara.`` 19Jesús vissi, að þeir vildu spyrja hann, og sagði við þá: ,,Eruð þér að spyrjast á um það, að ég sagði: ,Innan skamms sjáið þér mig ekki, og aftur innan skamms munuð þér sjá mig`? 20Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð gráta og kveina, en heimurinn mun fagna. Þér munuð verða hryggir, en hryggð yðar mun snúast í fögnuð. 21Þegar konan fæðir, er hún í nauð, því stund hennar er komin. Þegar hún hefur alið barnið, minnist hún ekki framar þrauta sinna af fögnuði yfir því, að maður er í heiminn borinn. 22Eins eruð þér nú hryggir, en ég mun sjá yður aftur, og hjarta yðar mun fagna, og enginn tekur fögnuð yðar frá yður. 23Á þeim degi munuð þér ekki spyrja mig neins. Sannlega, sannlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni, mun hann veita yður. 24Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni. Biðjið, og þér munuð öðlast, svo að fögnuður yðar verði fullkominn. 25Þetta hef ég sagt yður í líkingum. Sú stund kemur, að ég tala ekki framar við yður í líkingum, heldur mun ég berum orðum segja yður frá föðurnum. 26Á þeim degi munuð þér biðja í mínu nafni. Ég segi yður ekki, að ég muni biðja föðurinn fyrir yður, [ (John 17:27) því sjálfur elskar faðirinn yður, þar eð þér hafið elskað mig og trúað, að ég sé frá Guði út genginn. ] [ (John 17:28) Ég er út genginn frá föðurnum og kominn í heiminn. Ég yfirgef heiminn aftur og fer til föðurins.`` ] [ (John 17:29) Lærisveinar hans sögðu: ,,Nú talar þú berum orðum og mælir enga líking. ] [ (John 17:30) Nú vitum vér, að þú veist allt og þarft eigi, að nokkur spyrji þig. Þess vegna trúum vér, að þú sért út genginn frá Guði.`` ] [ (John 17:31) Jesús svaraði þeim: ,,Trúið þér nú? ] [ (John 17:32) Sjá, sú stund kemur og er komin, að þér tvístrist hver til sín og skiljið mig einan eftir. Þó er ég ekki einn, því faðirinn er með mér. ] [ (John 17:33) Þetta hef ég talað við yður, svo að þér eigið frið í mér. Í heiminum hafið þér þrenging. En verið hughraustir. Ég hef sigrað heiminn.`` ]
Copyright information for Icelandic